Fótbolti er stórkostlegur
Ég er sem sagt búin að jafna mig á áfallinu og spái Frökkum
ennþá sigri. Ætla að veðja við Arnar Inga um það hvort að Portúgal
eða Frakkland fari í úrslitaleikinn. Er búin að vera að hugsa um
hvað sé best að veðja uppá, því að Arnar þvertekur fyrir það að
veðja peningum. (Man sjálfsagt eftir 1000 kallinum sem ég hafði af
honum í fyrra
) Mér datt sú snilldarhugmynd í hug að ef að ég ynni
myndi ég birta hér á blogginu afar skemmtilegt
msn-samtal sem að átti sér stað milli mín og Arnars í fyrrasumar.
Það er alveg bráðfyndið og búið að skemmta mér mjög í gegnum
tíðina. Arnar Ingi er hins vegar alls ekki hrifinn af þessu samtali
og vill helst ekki að það verði birt opinberlega. Ég hugsaði mér
gott til glóðarinnar og skemmti mér yfir þessari tilhugsun í
dálitla stund, eða þangað til ég fattaði að þetta var síður en svo
góð hugmynd!! Ég gleymdi því að Arnar Ingi er með lífshættulegt og
jafnvel bannvænt tromp uppi í erminni, sem hefur meðal annars gert
það að verkum að ég hef ekki birt þetta samtal ennþá. Og þar sem ég
er ekki tilbúin til að lýsa yfir heilögu stríði á hendur honum,
ákváðum við að finna eitthvað annað til að veðja um. Allar tillögur
vel þegnar.
Ég er búin að standa sjálfa mig að því í ófá skiptin á HM að
hugsa; "Ohh.. hann er svo svalur" eða "Vá hann er svo góður" eða
jafnvel "Hann er svo mikil snilld!".. Ég held sem sagt upp á frekar
marga leikmenn. Ég ákvað að taka þetta saman og er komin með
dágóðan lista. Þetta er sem sagt bara listi yfir uppáhöld og
tengist getu ekki endilega í öllum tilvikum. Ég veit til dæmist
alveg að Wayne Rooney er góður, en ég fíla hann bara ekki, þannig
að hann er ekki á listanum
Þið fáið meira að segja myndir með
topp 10
1) Thirerry Henry, Arsenal,
Frakkland
2) Pavel Nedved, Juventus,
Tékkland
3) Zinidane Zidane, Real Madrid,
Frakkland
4) Ronaldinho de Assis Moreira, Barcelona,
Brasilía
5) Patrick Viera, Juventus,
Frakkland
6) Luís Figo, Inter,
Portúgal
7) Michael Ballack, Chelsea,
Þýskaland
8 ) Ronaldo Luiz Nazário de Lima,
Real Madrid, Brasilía
9) Hendrik Larsson, Helsingborg,
Svíþjóð
10) Arjen Robben, Chelsea, Holland
11) Fredrik
Ljungberg, Arsenal, Svíþjóð
12) Frank Lampard,
Chelsea, England
13) Deco
(Anderson Luiz de Sousa),
Barcelona, Portúgal
14) Roberto Carlos,
Real Madrid, Brasilía
15) Ashley Cole,
Arsenal, England
16)
Juan Roman Riquelme, Villareal, Argentína
17)
Oliver Kahn, Bayern Munchen, Þýskaland
18 )
Frank Ribery, Marseille, Frakkland
19)
Ricardo, Sporting, Portúgal
20)
Robert Emmanuel Pires, Villareal, Frakkland
21)
Jens Lehman, Arsenal, Þýskaland
22) Ze
Roberto, Bayern Munchen, Brasilía
23)
Giovanni Van Bronckhorst, Barcelona, Holland
24)
Steven Gerrard, Liverpool, England
25)
Nuno Gomes, Benfica, Portúgal
26)
Robin Van Persie, Arsenal, Holland
27)
Edwin Van Der Sar, Manchester United, Holland
28 )
Carlos Teves, Corinthians,
Argentína
29)
Christiano Ronaldo, Manchester United, Portúgal
30) Ian
Koller, Borussia Dortmund, Tékkland
31)
Gilberto Silva, Arsenal, Brasilía
32)
Bastian Schweinsteiger, Bayern Munchen, Þýskaland
33) Sol
Campbell, Arsenal, England
34)
John Terry, Chelsea, England
35)
Andriy Shevchenko, AC Milan, Úkraína
36)
David James, Manchester City, England
37)
Lionel Messi, Barcelona, Argentína
Þetta
er svona nokkurn vegin röðin. Nenni ekki að pæla meira í þessu í
bili. Best að enda þetta á einu stykku einkahúmor. Takk
og bless
Spurning dagsins: Úr
hvaða lagi er titillinn?
Guðrún Eik - Af
margföldum krafti, já!