14.04.2008 07:38:14 / -eik-

Nýtt blogg

Já kæru lesendur, eins og vonandi flest ykkar hafa tekið eftir þá hef ég fært skrif mín yfir á annan miðil; bloggar.is. Slóðin á nýja bloggið er

http://gunns.bloggar.is

Vonandi verðið þið jafn tíðir gestir þar og hér ;)

Kveðja Guðrún Eik


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 16:24:06 / -eik-

Vagga vagga, vagga mér í nótt

  • Já Titillinn er frá Hjálmum
  • Eða ætti ég að segja frá Einari Georg, mínum fyrrverandi umsjónar og íslenskukennara
  • Hann samdi líka textann sem ég stal úr síðast
  • Frá Hjálmum þeas
  • Ég er pirruð
  • Ég var neflinlega að blogga og það datt út!
  • Svo er ég búin að vera veik heima í 2 og hálfan dag
  • Hef Ekkert farið út
  • Og missi af Bingóinu í kvöld
  • Ég er líka í fýlu við facebook
  • Það neitar að taka við myndunum mínum
  • Mig langar heim í sveitina
  • Veit samt ekki hvort mig langi á blót
  • Gróa og Sara koma neflinlega ekki
  • Mig langar til að veðrið verði til friðs á laugardaginn
  • Svo ég komist suður
  • Mig langar á körfuboltaleik
  • Mig langar að hitta Laufeyju og co, Signýju og Guðrúnu Gróu
  • Mig langar í Cintamani peysu
  • Ég er að fara til Barcelona 10. mars og það Frítt
  • Það veitir örlítilli gleði inn í líf mitt þessa stundina
  • Styttist óðum í tvítugsafmælið
  • Mig langar að halda upp á það
  • Veit hins vegar ekkert hvernig það fer
  • Ætli ég endi ekki ein heima á kojufylleríi!
  • Það er komin ný skoðanakönnun
  • Kjósiði

Guðrún - verkfræði?

» 16 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 18:11:51 / -eik-

Það er svo undarlegt..

Jæja, áður en þið byrjið að lesa, þá ætla ég að biðjast afsökunar ef að eftirfarandi færsla móðgar einhvern, því það er alls ekki ætlunin. Þegar ég segi "stelpur" og "strákar" er ég ekki að alhæfa, því við erum eins misjöfn og við erum mörg.

Launamunur kynjana. Af hverju eru karlmenn yfirleitt tekjuhærri en kvennfólk? Laufey systir las grein um það um daginn og sagði mér frá henni. Ég er búin að pæla frekar mikið í þessu undanfarið og er komin á þá niðurstöðu að þarna liggi hundurinn algerlega grafinn. Held meira að segja að ég hafi fundið það einna mest í farinu hjá sjálfri mér. En allavegana, snúum okkur að greininni.

Þar sem stelpur eru fljótari að þroskast á fyrstu árum ævinnar (staðreynd) gengur þeim strax (flestum) vel í skóla. Allt frá fyrsta bekk grunnskóla eru stelpurnar þroskaðari en strákarnir og því betur í stakk búnar að takast á við námið. Þær fá því góðar einkunnir strax í byrjun og flestar halda því áfram út sína grunnskólagöngu. Strákarnir eru aftur á móti seinni í gang og fara flestir ekki að blómstra fyrr en í efstu bekkjum grunnskólans. Þeir eru því ekki vanir því hafa verð alla ævi með toppeinkunnir, þó að þeim sé farið að ganga betur. Þegar svo kemur að því að velja nám í háskóla kemur hik á stelpurnar. Þær eru orðnar svo ofur-metnaðargjarnar (fylgir því að ganga vel) og fara því frekar í nám sem telst "auðvelt". Þannig geta þær neflinlega haldið meðaleinkunninni hárri, en fara í nám sem leiðir til starfs sem er ekki með topplaun. Kennaranám, félagsfræði og fl. var nefnt í þessari grein. Strákarnir aftur á móti, eru orðnir fullir sjálfstrausts eftir gott gengi síðustu ár og kýla bara á það. Fara í læknisfræði, lögfræði eða verkfræði. Mjög erfitt nám, en þeim er líka meira sama þó þeir séu ekki að skora 9 og 10 á öllum prófum. Notabene: Þeir komast í gegnum námið og ná í gráðurnar sínar og vinna svo við hálaunuð störf, á meðan stelpurnar eru kannski með 9 og 10 í öllu, en námið skilar ekki eins góðum launum. Þetta er alls ekki meðvitað hjá stelpunum. Var það allavegana ekki hjá mér. En ég rýndi aðeins í sjálfa mig og komst að því að ástæðan fyrir því að ég hræðist að fara í verkfræði er að ég tel mig ekki nógu góða í eðlisfræði. Ég segi ekki að ég sé léleg, hef verið með 8. En það er þetta óöryggi. Það er þessi þráhyggja að fá 9. Ég er hrædd um að einkunnirnar mínar lækki ef ég vel verkfræði. Kannski gerist það, kannski ekki. Ég held bara að stelpur þurfi að hafa meiri trú á sér og koma sér í skilning um að það er allt í lagi að fá ekki alltaf toppeinkunnir. Það á ekki bara að leggja metnað í einkunnirnar, heldur líka námsvalið.

Endilega segið ykkar álit. Ég er alls ekki að reyna að gera lítið úr kennaranámi eða félagsfræðinámi. Minni líka á afsökunarbeiðnina í upphafi bloggsins, ef þetta fór fyrir brjóstið á einhverjum. Þetta er bara grein sem mér var sagt frá og eftir að ég hafði pælt aðeins í því þá varð ég sammála því sem kom fram.

Ég er búin að þrengja námsvalið mitt niður í 2 aðtriði. Sjúkraþjálfari eða Byggingaverkfræði.

Til hamingju með 20 ára afmælið í gær Sara :) 

Takk og bæ

Guðrún


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:05:06 / -eik-

Ja nú er ég aldeilis hlessa!

Nei nú bara getur ykkur ekki verið alvara...

 

... Er ekki komið nóg af þessum skrípaleik?

 

Svo er Heath Ledger dáinn :(

Blessuð sé minning hans

Guðrún - í sjokki


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 18:13:11 / -eik-

Ég mun ganga á þessum vegi uns lífsins dagur dvín

Sælir lesendur góðir.

Margt hefur gerst og breyst síðan ég ritaði hingað síðast. Tengdamamma er búin að liggja inni á sjúkrahúsinu á Akureyri síðustu vikuna, en byrjaði svo í endurhæfingu á Kristnesi í dag. Við Óskar keyrðum á milli Akureyrar og Akra bæði laugardag og sunnudag. Í gærkvöldi tókum við Tinnu greyið með okkur í Krókinn aftur, því hún ætlar að flytja inn til Röggu og Agnars. Við settum hana í sturtu við frekar lítil fagnaðarlæti, nema þá hjá Jóel. Honum fannst þetta afskaplega fyndið. Sérstaklega þegar hún hrissti af sér bleytuna. Á eftir ætla ég jafnvel að taka hana út í smá göngutúr. 

Vinnan á leikskólanum gengur vel. Maður er búinn að kynnast krökkunum nokkuð vel, og þó þau geti stundum verið óþekk þá geta þau líka verið alveg óborganlega sæt og fyndin. 

Brynhildur bað um slúður og því miður hef ég verið svo félagslega einangruð síðustu vikuna að ég veit ekki neitt. Svona dettur maður út úr öllu þegar maður klárar fjölbrautina. Jidúddamía.

Ragnhildur bað um myndir af Magneu og ætli ég geti ekki séð af nokkrum

PC247758-vi.jpg picture by gudruneik

Magnea með Bestu frænku sinni á jólunum, nýbúin að sofa af sér alla pakkana ;)

d-vi.jpg picture by gudruneik

Magnea Ósk rosa kát í burðarpokanum :)

l-vi.jpg picture by gudruneik

Fröken sætust

PC257770-vi.jpg picture by gudruneik

Svaka stuð á skiptiborðinu

Ætli ég láti þetta ekki nægja í bili.

Spurning dagsins: Úr hvaða lagi er titillinn? 

Guðrún Eik


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 21:21:28 / -eik-

Já hann var þekktur fyrir sín þrumuskot...

 

 

Djöfull er ég sátt með kjörið á íþróttamanni ársins!

Áfram Margrét Lára!

 

Guðrún Eik - á leiðinni á Palla 


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 14:16:29 / -eik-

Ég ætla að hengja jólagrein í gluggann..

Jammogjæja

Þá er ég loksins loksins komin heim í sveitina. Jóla"fríið" mitt verður þó með styðsta móti þessi jólin, þar sem greyið litla ég þarf að vinna á leikskólanum milli jóla og nýárs - akkúrat dagana sem Staðarskálamótið er fyrirhugað. Stór og mikill bömmer í kjölfar þessara frétta skyggði heldur á jólatilhlökkunina, en ég dó nú ekki ráðalaus skal ég segja ykkur. Ég á svo skemmtilega yfirmenn að ég fæ að hætta fyrr en venjulega svo ég geti brunað yfir Þverárfjallið og alla leið á Hvammstanga svo ég geti verið með / horft á mótið :) Bakið mitt er aðeins búið að vera að stríða mér og ekki batnaði það í nótt. Óskar skutlaði mér heim og tók svo Önnu með sér norður í morgun. Við kúldruðumst sem sagt bæði í litla rúminu mínu, sem alls ekki er hugsað fyrir tvo í nótt. Fyrir utan það að Óskar á það til að vera frekur á plássið!

Laufey og Indriði skírðu litlu snúlluna sína í gær og fékk hún það fallega nafn Magnea Ósk. Eftir að hafa troðið í okkur kökum, ís, parkódín (ég þ.e.a.s.) og fleiru í skírnarveislunni héldum við Óskar á Akureyri. Sökum mikilla anna í desember hafði mér ekki tekist að kaupa handa honum og foreldrum mínum jólagjafir og var því snögglega reddað í þeirri ferð.

Ég er svo mikill auli að það er ekki fyndið. Ég var að skrifa jólakortin heima í sveitinni um síðustu helgi og gleymdi slatta af þeim þar, þannig að þegar ég kom loksins heim í gærkvöldi (nótt) var ég orðin allt of sein að senda kortin. Þannig að nokkur komast því miður ekki til viðtakenda í tæka tíð.

Þessa stundina er ég í smá pásu frá jólaundirbúningi. Mamma er ekki mjög heilsuhraust þessa dagana, auk þess sem hún prjónaði skírnarkjól á Magneu, þannig að seríurnar voru ekki einu sinni komnar upp og ekkert búið að baka. Ég rak Óla á lappir í morgun (um hádegið;) og við tókum til við að þekja gluggana með seríunum. Seinni partinn verður svo sett í overdrive og bakað, þrifið og skreytt! Laufey, Indriði og Magnea koma svo einhvern tímann á eftir og ætla þau að eyða jólunum hjá okkur :D

Svo er Óli litli skrattakollur bara hættur við að fara suður :D Hann ætlar sem sagt að vera á Króknum eftir áramótin og er hættur við að flytja suður.

Að lokum vil ég þakka þeim sem sendu mér jólakort, alltaf gaman að fá svoleiðis :) Og óska lesendum þessa bloggs gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Guðrún Eik


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 10:22:43 / -eik-

I'm strong on the surface - Not all the way through

Já hvað haldiði, mín bara komin með lyklaborð í hönd og byrjuð að skrifa. Þessi vika hefur einkennst af þreytu og leti. Hef engin próf til að læra undir og engar skyldur að gegna. Jú reyndar sé ég um að halda húsinu hreinu, vaska upp, þvo þvotta og elda mat, en það tekur nú ekki langan tíma, enda ekki það stórt hús. Það eina sem ég geri af viti er að mæta í vinnuna, sem ég þarf ekki að mæta í fyrr en kl. 2 á daginn. Í næstu viku verð ég þó að öllum líkindum uppteknari því ég er að fara að byrja á leikskólanum :) Smá munur að labba í vinnuna, verð svona 3 mínútur í staðinn fyrir 30!

Að öllum líkindum fer ég ekkert heim fyrr en 22. des. Stóð til að fara 21. en þá tók Laufey upp á því að ætla að skíra á Króknum 22. svo ég nenni ekki að þeysast heim til þess eins að þeysast til baka morguninn eftir. Litla monsan dafnar vel. Safnar undirhöku og fellingum í gríð og erg og er bara krúttlegust í heimi. Við erum orðnar ágætis vinkonur. Þegar ég loksins kemst heim bíða mín þrif og bakstur, þar sem mamma er enn að ná sér eftir aðgerðir og geislunina og gerir lítið annað þessa dagana en að prjóna skírnarkjól. Stefni á að reyna að redda einhverju næstu helgi, en þá eru mor og far að fara á Frostrósatónleikana (sem mig langaði btw ógeðslega mikið að fara á;), en ég og Óskar vorum ráðnir fjósamenn á meðan. Við erum sem sagt að fara einu sinni - tvisvar í fjósið með pabba og þurfum svo að mjólka þrjú skipti EIN. Nú hugsa vafalaust margir "Hvaða vesen er þetta, það getur varla verið svo flókið að mjólka kýr?" En það getur oft verið strembnara en það sýnist. Sumar eru t.d. með júgurbólgu eða ónýta spena og ef maður mjólkar óvart júgurbókguspena í tankinn þá gæti maður verið að eyðileggja um 1000 lítra af mjólk. Sem er ekkert grín skal ég segja ykkur. Einu sinni kom líka fyrir að ég mjólkaði heilt mál í niðurfallið, en það er önnur og eldri saga. Fyrir utan það, er ein kusan komin á steypirinn og á að bera í kringum 14. des.

Ég hef dálítið verið að pæla undan farið hvað fólk getur verið vitlaust. Flest könnumst við við týpurnar sem oft eru kallaðir egóistar. Þeir einstaklingar eru alveg ofur-meðvitaðir um sjálfan sig og eigið ágæti, gera aldrei neitt rangt, eru fullkomnir í alla staði og hika ekki við að dásama sjálfa sig fyrir framan aðra. Þeir taka að sér allar ákvarðanatökur, ákveða hvað er töff, eru hreinlega allt í öllu og yfir flest hafnir. Svona týpur eru Bara þreytandi. Ég hef oft velt fyrir mér hvort að fólk hugsi hreinlega ekki hvað það er að segja. Sumir ættu kannski að staldra við í augnablik og gefa sér tíma til að móta setningar í höfðinu áður en þeir láta allt flakka. Hugsanir eins og "er þetta kannski aðeins of mikið" eða "gæti ég virkað hrokafullur eða góður með mig?" gætu komið að miklu gagni í sumum tilvikum. Stundum held ég líka að fólk heyri ekki alveg það sem það er að segja. Hrokinn og yfirlætið hreinlega veltur út úr fólki og það heldur að það sé að slá í gegn. Alveg óþolandi. Einhver segir kannski góða sögu og þá Verður egóistinn að koma með aðra sögu til að toppa hinn, undirstika eigið ágæti og verða aftur miðdepill athyglinnar. Þetta fólk endar svo aleitt og vinalaust, því hver nennir endalaust að hlusta á svona rugl?

Jæja, þetta var ágætisútrás.

Guðrún Eik  


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 12:08:04 / -eik-

Og niðurstaðan verður 100 % hamingja

Já sæl

Ótrúlega margt hefur á daga mína drifið síðan ég ritaði hingað nokkur orð síðast. Ég er orðin alveg hryllilega löt að blogga og held ég að þessi síða eigi ekki langan líftíma eftir. En af einni ástæðu fann ég mig knúna til að blogga og af einni ástæðu aðeins. Hún er sú að ég er orðin móðursystir. Síðasta föstudag klukkan 9:46 fæddist þeim Laufeyju og Indriða gullfalleg dóttir. Loksins loksins var hún komin í heiminn eftir langa og stranga bið. Við Óskar brunuðum að sjálfsögðu beinustu leið suður til að til að fá að hitta þá litlu og fengum við það seinni part laugardags, þegar litla fjölskyldan var komin heim. Þegar ég leit þessa litlu manneskju augum varð ég orðlaus. Aðra eins fegurð og fullkomnun hafði ég bara aldrei á ævi minni séð. Pínu pínu litlu neglurnar hennar og puttarnir. Og Augun. Hún opnaði fallegur augun sín fyrir mig. Aldrei á ævinni hafði ég verið jafn nálægt því að springa af gleði og hamingju. Og aðeins rúmum sólarhring áður hafði fallega fallega systir mín fætt þessa stúlku í heiminn. (Með dyggri aðstoð Indriða, auðvitað;). Ég veit hreinlega ekki hvernig á eftir að verða þegar og ef ég eignast sjálf börn, Jidúddamía!

 

 

Er þetta ekki bara það fallegasta sem þið hafið séð?? En svona til að slá botn í þessa mjög svo tilfinningasömu færslu þá vil ég óska Laufeyju og Indriða innilega til hamingju með litla kraftaverkið sitt. Ef einhverjir eiga skilið að verða foreldrar þá eru það þau og er ég ekki í nokkrum vafa um að þau eiga eftir að verða bestu foreldrar sem sú stutta gæti hugsað sér.

Guðrún Eik - móðursystir


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 16:10:38 / -eik-

Já fínt, já sæll, jáfínt-jásæll-jáfínt-jásæll, já fínt, já sæll..

Góðan daginn lesendur góðir

Það er nú meira óskapar ástandið á mér núna. Ég ligg uppi í rúmi, en þar er ég búin að vera síðan seinni partinn í gær. Ástæðan er einföld; ég er veik! Ég verð líka aldrei svona kjánalega veik. Geri ekkert nema hósta, og það ekkert lítið! Átökin voru svo mikil í gær að ég held ég hafi brákað 2-3 rifbein. Var líka orðin frekar hrædd um að kafna á tímabili. En ég lifði nóttina af og Óskar reddaði mér hóstasafti og sterkum hálstöflum, þannig að ég er vonandi að fara að lagast. Sem betur fer var ég bara í einu prófi og það var á mánudaginn :)

Nú.. Síðasta helgi var snilld. Heimaslátrun á Ökrum sem við Óskar tókum virkan þátt í. (Ég var reyndar ekki í slátruninni sjálfri, bara úrvinnslunni). Svo fékk ég það krefjandi verkefni á laugardeginum að svæfa Jóel. Það tók tíma og miklar fortölur, en hafðist þó á endanum. Um kvöldið var svo Páll Óskar á Mælifelli og að sjálfsögðu létum við okkur ekki vanta. Þvílík og alger snilld sem þetta kvöld var. Ég var með myndavélina með mér og afraksturinn má sjá á www.facebook.com Hér er þó smá sýnishorn;

 

Brynhildur og Arna :)
Palli hélt uppi hörkustuði!

Í gær tók ég stóra ákvörðun. Þegar ég er búin að læra það sem ég kem til með að læra (hvað sem það nú verður), þá ætla ég að ættleiða barn. Ekki af því að mig langar til að verða mamma strax og ekki af því að ég get ekki eignast börn sjálf (sem ég veit ekkert um, því það hefur ekki reynt á það;). Nei. Barnið mitt verður heldur ekkert venjulegt barn. Ég er neflinlega að tala um SOS barn. Fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta börn í Afríku sem hægt er að "ættleiða". Maður borgar vissa upphæð á mánuði (held að það sé um 5000 kr.) og í staðinn sér maður fyrir barninu. Það fer í skóla og fær fullt af tækifærum sem það annars hefði aldrei fengið. Mér finnst þetta allavegana rosalega sniðugt.

Guðrún Eik - Veik


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 10:38:44 / -eik-

Sendu nú gullvagninn að sækja mig...

Komiði sælir mínir kæru lesendur. Það er að segja.. ef það eru einhverjir lesendur eftir!

Ég hef verið í mikilli blogglægð undanfarið. Helst vegna annríkis í vinnunni, skólanum og húsmóðurstarfinu ;) Ég er sem sagt byrjuð að vinna í Þreksport og er þar alla virka daga frá 2 - 6. Sérdeilis prýðilegt. Nú bakið hefur verið ákaflega leiðinlegt undanfarið, kannski vegna þess að ég hef farið frekar ógætilega. Tvær síðustu helgar hef ég til dæmis verið í brjálaðri smalamennsku heim á Bakka og aðeins gleymt mér í gleðinni. Afleiðingin er sú að á eftir mun ég skunda í Sjúkraþjálfun til hennar Sivu. Klapp klapp fyrir því.

Eftir að hafa hlaupið af mér nokkur kíló í smalamennskunni á laugardaginn (I wish) brunuðum við Óskar og Óli aftur norður á Krók, því eins og alþjóð veit, þá var síðasta helgi hvorki meira né minna en Laufskálaréttahelgin! Ég fór út að borða með Örnu, Signýju og Ragnhildi og eftir það lá leiðin í afmælispartý til Katrínar Sveinu. Ballið var lala. Hef skemmt mér betur og hefur líka liðið betur í bakinu. (Vælivæl) Held að það sé einhver bölvun á mér, því ég skemmti mér alltaf bara annað hvert Laufskálaréttaball. Annars hitti ég fólk sem ég bjóst nú ekki beint við að sjá. Þar á meðal Sigga Ella, Sigga Má, Óðinn frænda Erlu og Báru frænku Erlu. Frekar fyndið :)

IMG_6508.jpg picture by gudruneik

Svona leit ég út á mínu fyrsta Laufskálaréttaballi, einungis 16 ára, alsaklaus og bláedrú.

Það er bara rétt rúmlega mánuður þangað til Laufey á að eiga!!! Jidúdda hvað ég hlakka til. Annars er það alveg skuggalegt hvað tíminn líður. Mér finnst rétt kannski 2 mánuðir síðan ég fattaði að hún væri ólétt. (Ójá, ég fékk það á tilfinninguna, hringdi í Laufeyju og spurði bara. Vissi það þar með á undan öllum öðrum híhí:klikk: ) En nei nei, það eru næstum 8 mánuðir síðan. Sem minnir mig á það að ég verð að drífa mig að sauma þetta bévítans teppi saman. Guð hvað það er leiðinlegt.

Jæja, ætli ég kalli þetta ekki gott í dag. Ágætisbyrjun á (vonandi) afkastamiklum tíma í blogginu. Svo fer maður að nenna að setja djamm-myndir á netið, svona fyrst maður er kominn með facebook ;)

Guðrún Eik - frétti um daginn að ég væri með krúttlegt nef!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 15:24:51 / -eik-

Why I never walked away..

Margt hefur gerst síðan ég ritaði síðustu færslu. Ber þar hæst að nefna;

  • Tenerife-ferð, með tilheyrandi sólböðum, sandi, söltum sundlaugum, jet-ski leigu, sólarexemi, afslöppun og áti. Ferðin heim tók 6 tíma og bakið á mér þodi það engan veginn
  • Byrjaði í mínum 9 einingum í skólanum
    • °LÍF 113, ENS 503 og Málmsmíði
  • Innflutningur í Raftahlíðina
  • Skrepp á Akureyri
  • Kveðjupartý fyrir Sigga og Davíð
  • Busaball sem ég endaði uppi í rúmi klukkan hálf 2 með brotið bak, eftir að hafa tekið aðeins of mikið á því á dansgólfinu
  • Leti leti leti

Í þessum skrifuðu orðum er ég á haus að taka til. Sökum mikillar leti um helgina, er frekar mikið drasl út um allt. Það gerist þegar þú heldur partý sólarhring eftir að þú komst heim frá útlöndum. Þetta er nú farið að taka á sig nokkuð góða mynd núna, enda er ég búin að vinna í þessu síðan um hádegið.

Fögin mín 3 eru öll fyrir hádegi, þannig að næsta mál á dagskrá er að sækja um vinnu. Allar uppástungur vel þegnar.

Svo er ég svona líka komin á Facebook. Ferlega sniðugt dæmi sem ég mæli sterklega með.

Guðrún Eik - komin á Krókinn

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 14:07:25 / -eik-

Í sandölum og ermalausum boool...

Kæru landsmenn

Á þessum tíma eftir slétta 2 sólarhringa, verð ég stödd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ferðinni er heitið, eins og flestir lesendur þessa bloggs ættu að geta getið sér til um, til Tenerife. Ég ákvað að koma með eitt stykki blogg áður en ég færi út, og taldi réttast að koma með það í dag, þar sem að á morgun verð ég að vinna til 15:30, líklega pakka niður á síðustu stundu, smala, koma mér suður og fleira vesen sem fylgir því að vera ég. Núna, t.d. ætti ég að vera að pakka niður. Ég er m.a.s. byrjuð. Ferðataskan liggur á miðju svefnherbergisgólfinu, opin upp á gátt og í hana eru komin heil 2 bikiní. Hreinn þvottur er um allt herbergið í stöflum og bíður bara eftir því að komast ofan í töskuna. Ég á hins vegar við mjög alvarlegt vandamál að stríða þegar kemur að því að pakka niður. Mér finnst það neflinlega leiðinlegt. Letin einhvern veginn sogast að mér og tekur sér bólfestu í líkamanum þegar ég þarf að fara að pakka. Þess vegna er ég núna fyrir framan tölvuna að deila þessu með ykkur, í staðinn fyrir að taka mig á og pakka. Sé til hvað ég verð lengi að blogga, hef kannski smá tíma áður en ég þarf að fara í vinnuna..

En að öðru. Ég dýrka Garðar Thor Cortes. Hann syngur svoo vel og er bara æði. Hunting High and Low er að verða uppáhaldslagið mitt held ég bara. Annar söngvari sem er mikið spilaður þessa dagana er álíka lágt skrifaður og Garðar er hátt skrifaður. Áður en þetta Rock Star dæmi byrjaði, þá þoldi ég ekki Á Móti Sól, aðallega af því að ég þoldi ekki Magna. Hvort sem það var sjálfstæð ákvörðun, eða copering á skoðunum Eyrúnar og Sibbu, þá líkaði mér ekki við hann. Eins og ég hef áður minnst á, þá held ég að það sé eitthvað landlægt í Hrútafirðinum. En allavegana, þegar hann Magni fór í Rock Star þá hækkaði hann nú dálítið í álitli. Ég get allavegana viðurkennt að hann er góður söngvari. En þegar hann varð svo geðveikt "frægur" að hann skildi við konuna sína og blablabla þá var hann fljótur að hrapa aftur. Ég hef heyrt heil 3 lög af þessari nýju plötu hans og Jesús minn góður. Þvílíkt og annað eins VÆL! Svo finnst mér dálítil kaldhæðni að maður sem standi í skilnaði sé að væla um ástina. Finnst hann varla hafa efni á því, án þess þó að ég viti nokkuð um það hvernig stóð á þessum skilnaði. Það er varla orðið hlustandi á útvarp, sem dæmi; þegar ég fór í vinnuna um daginn. Kveikti á Bylgjunni og hver var þar, nema mín ástkæra Valdís Gunnarsdóttir (í alvöru talað, hver hleypti henni í útvarp??) ég var fljót að svissa yfir á Rás 2, en þar var einmitt áðurnefndur Magni að væla um að lofa einhverri heiminum. Ég slökkti á útvarpinu og keyrði í þögn.

Jæja, ég þarf virkilega að fara að pakka. Við sjáumst á fimmtudag - föstudag í næstu viku. Verð líklega lent á Keflavíkurflugvelli um 2 leytið aðfaranótt fimmtudags. Og já, ég veit að það eru örugglega margir ósammála mér með Magna, og Ragnhildur þar efst á blaði. Ykkur er frjálst að segja ykkar skoðun að sjálfsögðu, en ég ætla að taka fram að þetta er bara mín skoðun, engar alhæfingar.

Guðrún Eik - Ég fer í fríið


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 15:40:51 / -eik-

Og með bros á vör við leikum búggalú

Ja hérna, ég held svei mér þá að lægðin sé liðin undir lok.

Í gær hélt ég galvösk af stað á Blönduós, ásamt fríðu föruneyti. Helgi, Bjarni, Rakel og Perla fengu far með mér, eftir miklar vangaveltur og pælingar um hvernig best væri að raða í bílana. Nú kunna einhverjir að spyrja sig; "Hvað var Guðrún að gera á Blönduósi, með fullan bíl af börnum"? Jú, ég var að fara á Þristinn, en Þristurinn er keppni í frjálsum íþróttum á milli 3 félaga á Norðurlandi-Vestra; USVH, USAH og UMSS. Skemmst er frá því að segja að krakkarnir mínir stóðu sig með mestu prýði og unnu stigakeppnina :) Stóðu þau sig ótrúlega vel og er ég ótrúlega stolt af þeim öllum. Sjálf keppti ég oft á Þristinum á mínum yngri árum og á frekar bitrar minningar frá Blönduósi, en fyrir einum 6 árum síðan vann UMSS okkur, þar, með aðeins 1 skitnu stigi!! En það var nú allt í lagi, því árið eftir unnum við bikarinn 8)

Eftir Þristinn brunaði ég, barnalaus, yfr Þverárfjallið. Ég hafði hugsað mér að taka með mér fullt af dóti, svo ég þyrfti ekki að drösla búslóðinni (ekki það að hún sé mjög fyrirferðamikil) norður, nýkomin heim af Tenerife. En þar sem aumingja Guðrún var búin að liggja í rúminu með einhverja ógeðs-pest í 2 daga, varð ekkert úr þessu snilldarlega plani. Ég gleymdi meira að segja að kippa DVD-spilaranum mínum með.

Að lokum vil ég benda á nýja skoðanakönnun. (Hvað? Þessi gamla var nú bara búin að vera þarna í nokkra mánuði...) Hlutverk þessarar nýju skoðanakannanar er að útklá ágreining milli mín og Söru. Ætla ég ekki að greina frá því hvorri finnst hvað, til þess að algert hlutleysi náist.

Guðrún Eik - 6 dagar 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 11:18:30 / -eik-

Lífið er yndislegt

Ég er búin að vera í mikilli blogglægð, en lægðin sú orsakast helst af biturleika, hugmyndaleysi, andleysi og tölvuleysi. Ég hef sem sagt verið allslaus síðustu daga.

Partur af biturleikanum er að ég gerði ekkert um versló. Ekkert! Á milli þess sem ég vann af mér rassinn (gerði það reyndar ekki, hann minnkaði ekki einu sinni) gnísti ég tönnum með tárin í augunum yfir því að vera ekki í Eyjum. Ég fékk reyndar mjög reglubundin símtöl þaðan, og var í nokkrum sinnum í beinni útsendingu frá Eyjum, en það var bara til að auka á biturleikann. Ég er því búin að ákveða að fara til Eyja á næsta ári, þó að Óskar verði sá eini sem nenni með mér. En hvað segiði, Eyjar 2008??

Annars er ég bara hress. Mjög hress reyndar. Það styttist óðum í Tenerife og svo byrjar skólinn með tilheyrandi búferlaflutningum. Ég sé fram á álíka mikið stress og í fyrra, en þá lennti ég á Keflavíkurflugvelli um 5 leytið á sunnudegi, brunaði heim, fann til eitthvað dót (því ég hafði ekki verið svo forsjál að byrja að pakka því áður en ég fór til Brussel) og henntist svo á Krókinn með Eyrúnu. Þegar ég var komin á vistina fann Sindri fyrir mig nokkur busagrey sem báru allt dótið mitt upp í herbergi fyrir mig :) Í kjölfarið fylgdi svo ein stressaðasta vika sem ég hef lifað.

En eins og ég kom inn á áðan þá eru skemmtilegir dagar framundan. Ég á bara eftir að vinna 8 daga. Þá tekur við vika á Tenerife með Óskari, Önnu, Krissa og tengdó. Eftir það held ég á Krókinn og byrja í skólanum og líklegast eitthvað að vinna. Hlakka til þess. 1. september er svo rétt handan við hornið og það er náttúrulega stórmerkilegur dagur. Fljótlega eftir það eru svo réttirnar hérna heim og það verður eitthvað húllumhæ. Þannig að það eru bjartir tímar fram undan.

Svona ykkur að segja þá er ég líka að skána hellings í bakinu. Get gert miklu meira en áður og þetta er allt að gera sig :)

Til hamingju með afmælið Ragnhildur :) Loksins orðin stór stelpa ;)

Guðrún Eik - Eyjar 2008?


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15